Fourside™ Kannan

Árið 1991 varð Blendect fyrsta fyrirtækið til að kynna á markað ferkantaða könnu fyrir blandara. Þessi kanna er í dag þekkt sem Fourside™ kannan.

Sjálfvirk blöndun

Ertu orðinn þreytt/ur á að þurfa alltaf að leggja til handavinnu til að ná klára að blanda hráefnið? Ferkantaðar könnur hafa það framyfir aðrar könnur að þær mynda hvirfyl, eða sog sem dregur blönduna í hringrás í gegnum skurðar leið hnífsins. Þessi hönnun er megin ástæða þess að Blendtec hefur ekki prjón í könnum sínum, það er hreinlega engin þörf að ýta á eftir hráefninu ofan í könnuna. Eftirfarandi mynd útskýrir fremur vel það sem verið er að ræða um:

Árangursríkari Hnífur

Blendtec blandararnir kynntu einnig inn á markað notkun hnífa með vængjum í könnunum sínum. Þetta gerir hnífnum kleift að skera meira á þeim tíma sem honum er gefinn. Einnig bætir þetta hraðann á soginu og hringrásinni sem á sér stað í könnunni. Eins og er sýnt í myndinni að ofan nær hnífurinn alveg út að köntum og er hvor hnífurinn fyrir sig 3 tommur á stærð.

Sterk og þægileg hönnun

Mikil áhersla er lögð á öryggi og styrk í könnunum. Efnið sem könnur blendtec eru búnar til úr er Co-Polyester plast. Efnið er BPA frjálst, og fyrir þá sem ekki vita þá leggja BPA efni áhættu á líkamlegum skaða og að sögn margra aukar líkur á krabbameini. Blendtec kærir sig um heilsu og sér þess vegna til þessa að ekkert geti haft skaðleg áhrif á þig. Á hlið könnunar eru auðskiljanlegar rúmmáls merkingar til að gera matargerðina einfalda.

Kannan er 7 x 7 x 9.5 tommur á stærð og getur tekur tæpa 2 lítra af hráefni. Kannan er hönnuð þannig að hægt er að stafla mörgum könnum þegar þær eru ekki í notkun, og því auðveldar það pláss sem þær taka. Það er vert að taka það fram að vegna lögunar könnunar er hægt að hella úr könnunni á báðum hliðum og beint áfram.

Með öllum Fourside™ könnum kemur gúmmí lok með opnanlegu plastloki ef bæta þarf í blönduna á meðan hún er að eiga sér stað.

Fourside™ kannan passar á alla Blendtec blandara og er fullkomin fyrir minna magn af blöndun. Ef þú ert að leita eftir könnu sem getur blandað fyrir stærri hópa mælum við með að þú skoðir Wildside™ könnuna.

Sérkenndu könnur þínar

Blendtec bíður upp á að panta könnur í mismunandi litum með sérstæðar merkingar. Ef þig vantar t.d. könnu sérmerkta fyrir viðskiptavini með hnetuofnæmi geturðu merkt könnuna eða haft hana í öðrum lit svo að þú getir notað könnu sem er aðeins fyrir þannig aðstæður. Könnurnar eru til í rauðum eða brúnum lit. Merkingarnar eru hannaðar af þér og eftir þínum þörfum.

Verð nú aðeins: 23.900 kr.

Könnunni fylgir 2ja ára ábyrgð